Norðurlandamót Dennis og Muni unnu síðustu úrslit dagsins

  • 11. ágúst 2024
  • Fréttir

Dennis og Muni í forkeppni í tölti. Ljósmynd: Anja Mogensen

A-úrslit í tölti meistara voru síðustu úrslit Norðurlandsmótsins. Ísland átti ekki fulltrúa í þeim úrslitum þar sem Sigurður Sigurðarson og Tígull frá Kleiva drógu sig úr keppni.

Norðurlandameistari er Dennis Hedebo Johansen á Muna fra Bendstrup með 8,61 í einkunn. Þeir kepptu fyrir hönd Danmerkur.

Í öðru sæti varð Kristján Magnússon á Óskari från Lindeberg með 8,33 í einkunn, en hann keppir fyrir hönd Svíþjóðar og í þriðja sæti varð Rasmus Møller Jensen á Röski fra Skjød með 7,94.

 

# Knapi Hestur Einkunn
1 Dennis Hedebo Johansen Muni fra Bendstrup 8.61
2 Kristján Magnusson Óskar från Lindeberg 8.33
3 Rasmus Møller Jensen Röskur fra Skjød 7.94
4.1 Frederikke Stougård Austri frá Úlfsstöðum 7.67
4.1 Andreas Kjelgaard Stjörnustæll fra Hybjerg 7.67
6 Clara Ingmyr Fróði från Nybygget 7.56

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link