Diddi kominn með ísinn í magann
Gamalkunnugt yfirbragð var komið á Sigurbjörn Bárðarson þegar hann reið inn á völlinn í forkeppni í A flokki gæðinga. það var greinilegt að hann var kominn með ísinn í magann; yfirvegaður og kaldur, en hárnákvæmur. Þeir sem hafa fylgst með kappanum í gegnum tíðina kannast vel við þennan ham og vita að þegar sá gállinn er á karli er hann stórhættulegur. Enda var sýningin á Stakki fumlaus, skeiðið frábært eins og oftast. Greinilegt var að Sigurbjörn reið upp á öryggið og lét það nægja í bili.
Flestir hestamenn vita að sigur í A flokki gæðinga á Landsmóti er líklega eina gullið sem Diddi hefur ekki unnið í hestaíþróttinni, en kannski það sem hann hefði helst viljað vinna. Tíminn sem hver maður hefur til umráða er ekki ótakmarkaður. Hann mun því sækja fast að í þetta skiptið. Og það er greinilegt gamli keppnismaðurinn er ennþá í gírnum og vissara fyrir hina að vara sig. Aðeins fyrsti hlutinn af þremur í keppninni búinn!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH