Diva hæst dæmda hrossið fætt í Svíþjóð
Diva från Ådalen
FEIF heldur utan um alls konar staðreyndir og tölfræði tengda aðildarlöndum sínum. Samkvæmt tölum FEIF er Svíþjóð það land sem er með fjórða mesta fjölda af skráðum hrossum á lífi eða 26.078 talsins. Ef þetta eru rétt uppgefnar tölu hefur talsverð fækkun átt sér stað á milli ára í Svíþjóð.

Fjöldi lifandi hrossa sem eru skráð í Danmörku síðustu fimm ár
163 hross voru sýnd í Svíþjóð í ár á fimm kynbótasýningum. Það er talsvert færri hross en hefur verið undanfarin ár. Af þessum 163 hrossum eru 153 skráð með fullnaðardóm í WorldFeng og 106 af þeim eru hross fædd í Svíþjóð. Flest hross voru skráð á kynbótasýninguna Romme 2 sem var haldin 21. – 23 júní. Dómarar á sýningunni voru Guðlaugur V. Antonsson (IS), John Siiger Hansen (DK) og William Flügge (DK).

Fjöldi hrossa sem hafa hlotið dóm síðustu fimm árin í Svíþjóð
Efsta hrossið sem sýnt var í Svíþjóð er Gljátoppur frá Miðhrauni en hann hlaut 8,50 í aðaleinkunn, hann var jafnframt með hæstu hæfileika einkunnina 8,59. Hæst dæmda sænsk fædda hrossið er Diva från Ådalen en hún hlaut 8,36 í aðaleinkunn, 8,25 fyrir hæfileika og 8,56 fyrir sköpulag sem var jafnframt hæsta sköpulagseinkunnin gefin í ár í Svíþjóð.
Meðalaldur þeirra hrossa sem hlutu fullnaðardóm í Svíþjóð er 6,92 ár. Meðaltal sköpulagseinkunnar er 7,95, hæfileikaeinkunnar er 7,47 og aðaleinkunnar 7,64. 18 hross hlutu fyrstu verðlaun, 12 af þeim eru fædd í Svíþjóð.
Erlingur Erlingsson sýndi flest hross í Svíþjóð eða 36 talsins en næstur á eftir honum er Máni Hilmarsson með 17 hross
Tíu hæst dæmdu hrossin í Svíþjóð
| Fæðingarnúmer | Nafn | Uppruni í þgf. | Sýnandi | Aðaleinkunn |
| IS2015137725 | Gljátoppur | Miðhrauni | Máni Hilmarsson | 8,50 |
| SE2016271032 | Díva | Ådalen | Erlingur Erlingsson | 8,36 |
| IS2013286959 | Embla | Litlu-Tungu 2 | Erlingur Erlingsson | 8,27 |
| SE2015170427 | Sókrates | Sundabakka | Vignir Jónasson | 8,25 |
| IS2013237487 | Berglín | Bergi | Sigurjón Örn Björnsson | 8,24 |
| SE2012104455 | Alvar | Salomea | Vignir Jónasson | 8,13 |
| IS2016237880 | Sólkatla | Hömluholti | Máni Hilmarsson | 8,11 |
| SE2017215920 | List | Lilla Sträckås | Erlingur Erlingsson | 8,11 |
| IS2016187728 | Glær | Dalbæ | Erlingur Erlingsson | 8,08 |
| SE2015270299 | Jófríður | Kejsarängen | Máni Hilmarsson | 8,05 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH