DNA-sýnataka á föstudag
Pétur Halldórsson, ráðunautur hjá RML, verður við DNA-stroksýnatökur í hesthúsahverfum á höfuðborgarsvæðinu föstudaginn 15. maí. Áhugasamir vinsamlegast setji sig í samband við Pétur í síma 862-9322 og/eða [email protected].
Minnum á að frá vori 2015 verða allar hryssur sem koma til kynbótadóms að vera skráðar með DNA sýnatöku í WorldFeng. Ekki þarf að liggja fyrir sönnun á ætterni þeirra. Sama fyrirkomulag og áður er varðandi stóðhesta. Sjá nánar um DNA sýni og arfgerðargreininar hér á vefnum: http://www.rml.is/is/bufjarraekt/hrossaraekt/dna-synatokur.
Þetta kemur fram í frétt frá RML.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH