Dómaralisti meistaradeildar
„Nú styttist óðum í opnunarhátíð og fyrstu keppni Meistaradeildar í hestaíþróttum 2013, sem haldin verður 31 janúar næstkomandi. Spennan er að magnast bæði hjá knöpum og áhorfendum enda er ljóst að keppnin verður óhemju hörð og spennandi í ár.
Gengið hefur verið frá ráðningu dómara fyrir MD 2013. Sama fyrirkomulag verður og í fyrra þ.e. tveir dómarar eru í hverju pari á hverju móti.
Yfirdómari verður Hulda Geirsdóttir og mun hún hafa yfirumsjón með öllum dómaramálum deildarinnar í ár.
Dómarar sem hafa verið ráðnir fyrir keppnisárið eru:
Elsa Magnúsdóttir
Halldór Victorsson
Magnús Sigurjónsson
Páll Bragi Hólmarsson
Sigríður Pjetursdóttir
Sigurbjörn Victorsson
Sigurður Ævarsson
Steindór Guðmundsson
Sævar Örn Sigurvinsson
Þórir Örn Grétarsson,“ segir i tilkynningu frá stjórn meistaradeildar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH