Dómarar nýta sér tæknina við endurmenntun

  • 5. maí 2021
  • Fréttir

HÍDÍ sendi frá sér eftirfarandi grein.

Hestaíþróttadómarar á Íslandi hafa ekki farið varhluta af Covid ástandinu í heiminum, en fjölda móta og alþjóðlegri dómararráðstefnu var m.a. aflýst á liðnu faraldursári og ekki hefur verið hægt að koma saman til endurmenntunar. Dómarar hafa þó ekki dáið ráðalausir heldur nýtt sér tæknina líkt og margir aðrir á þessum tímum. Hefðbundin endurmenntun fór því  fram á rafrænan máta og var ítarlegri en vanalega. Hún fór fram í tvennu lagi undir lok síðasta árs og byrjun þessa árs, þar sem dómarar dæmdu eftir myndböndum og skiluðu inn tölum sínum og athugasemdum rafrænt, auk þess að svara spurningum úr reglum og leiðara. Niðurstöður úr þessum tveimur könnunum voru svo yfirfarnar og niðurstöður sendar hverjum dómara fyrir sig.

Í síðustu viku var svo skerpt enn frekar á endurmenntun fyrir komandi tímabil þegar Hestaíþróttadómarafélagið fékk Mette Mannseth tamningameistara og yfirreiðkennara á Hólum til liðs við sig með rafrænt kennslukvöld þar sem Mette fór yfir líkamsbeitingu hrossa og gangskiptingar. Frábært innlegg í dómstörfin framundan, en dómarafélagið hefur mörg undanfarin ár leitað í smiðju reiðkennara, sálfræðinga og fleira fagfólks þegar kemur að símenntun sinna félagsmanna.

Þrátt fyrir að Heimsmeistaramót hafi verið blásið af lítur vel út með keppnistímabilið á Íslandi og íslenskir dómarar hlakka til að taka til starfa við íþróttamót um allt land næstu mánuðina.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link