Dorrit ríður í gegnum Brandenborgarhliðið
Dorrit Moussaieff mun ríða í gegnum Brandenborgarhliðið í miðborg Berlínar á opnunarathöfn heimsmeistaramóts íslenska hestsins á sunnudag.
Ólafur Ragnar Grímsson mun fylgja eiginkonu sinni en hann mun ekki, eftir því sem næst verður komist, fara um á hesti.
Hliðið fræga
Brandenborgarhliðið er eitt helsta kennileitið í Berlín og ein fárra bygginga sem stóð af sér sprengjuárasir Bandamanna í lok Síðari Heimstyrjaldarinnar. Hliðið skemmdist þó nokkuð en var endurbyggt á árunum 1956-57.
Hliðið er 26 metra hátt og 65 metra breitt. Fyrirmyndin var Propylaea, inngangahofið mikla að Akrópólishæðinni í Aþenu. Efst trónir hestaeykið Quadriga, en þar keyrir rómverska sigurgyðjan Viktoría á vagni sem dreginn er af fjórum hestum.
Tvær merkar ræður voru fluttar á tímum múrsins og kaldastríðsins vestanmegin við hliðið.
Árið 1963 hélt John F. Kennedy ræðu þar og sagði þá hin frægu orð: „Ich bin ein Berliner“, Ég er Berlínarbúi.
Árið 1987 var Ronald Reagan á sama stað og sagði : „Mr. Gorbachev, open this gate! Mr. Gorbachev, tear down this wall!“, Gorbachev opnaðu þetta hlið, Gorbachev rífðu niður þennan vegg.
Múrinn féll svo 9. nóvember 1989.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands