Draumahrossið er viljugt og kraftmikið
Skeiðkappreiðar eru sú keppnisgrein sem gefur nákvæmasta mynd af árangri. Þar er keppt við klukku og niðurstöðurnar því ótvíræðar. Skeiðkappreiðar hafa alltaf verið mjög vinsælar og við hestamenn erum heppnir með það að mikill fjöldi kappreiða er haldinn á hverju tímabili, svo að það ætti að vera auðvelt að æfa upp færni í greininni. Margir mikla þó fyrir sér að keppa í greininni. Hvernig ætli sé best að undirbúa keppnishross í skeiði fyrir tímabilið og hvernig er þjálfun á þessum hrossum háttað?
„Þegar ég er að velja mér skeiðhest þá skiptir það mig ekki máli hvernig reiðhestur þetta er. Mér finnst það vera aukaatriði. Fyrir mér er þetta keppnishestur í skeiði og það er hlutverkið hans.“
Eiðfaxi ætlar að ræða við nokkra af fremstu skeiðreiðmönnum landsins í næstu tölublöðum, en leikurinn hefst með Bjarna Bjarnasyni. Bjarni er einn fremsti skeiðknapi landsins um þessar mundir, en hann hefur keppt á fjöldanum öllum af hrossum og þjálfað til afkasta. Hann útskrifaðist úr Háskólanum á Hólum sem reiðkennari árið 2009 en hefur verið við loðandi hestamennsku og þjálfun frá unga aldri. Bjarni er þekktur fyrir prúðmannlega reiðmennsku, mikinn metnað og einstaklega fljót hross.
Lesið meira um hvernig Bjarni þjálfar skeiðhrossin sín í nýjasta tölublaði Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða í gegnum tölvupóst [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands