Norðurlandamót Draumamót Guðmundar Einarssonar

  • 7. ágúst 2026
  • Fréttir

Guðmundur Einarsson og Draumu från Tängmark. Ljósmynd: Cassanda Laikmets/Clfoto

Kristján og Krafla hlutu silfur í 250 metra skeiði

Það var mikil spenna fyrir síðasta sprett í 250 metra skeiði fullorðinna á Norðurlandamóti því þar mættust þeir Kristján Árni Birgisson á Kröflu frá Syðri-Rauðalæk og Guðmundur Einarsson á Draumi från Tängmark. Fyrir lokasprettinn var Kristján í forystu á tímanum 22,94 sekúndur en Guðmundur hafði hraðast farið á 22,96 sekúndu.

Í lokasprettinum mistókst spretturinn hjá Kristjáni en Guðmundur náði frábærum tíma og stendur uppi sem Norðurlandameistari á 22,79 sekúndum, Guðmundur keppir fyrir Svíþjóð. Annar varð Kristján Árni á Kröflu og í þriðja sætinu ríkjandi heimsmeistarinn í greininni, Natalie Fischer á Ímni fra Egeskov á 22,99 sekúndum.

Tveir íslenskir knapar til viðbótar við Kristján tóku þátt í greininni og varð Bergþór Eggertsson í fimmta sæti á Fjalladís frá Fornusöndum á 23,74 sekúndum og Sigurður Narfi á Randver frá Þóroddsstöðum varð í sjöunda sæti á 23,74 sekúndum.

Fullorðinsflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Gudmundur Einarsson Draumur från Tängmark 22,79
2 Kristján Árni Birgisson Krafla frá Syðri-Rauðalæk 22,94
3 Natalie Fischer Ímnir fra Egeskov 22,99
4 Liv Runa Sigtryggsdottir Baltasar frá Strandarhjáleigu 23,03
5 Beggi Eggertsson Fjalladís frá Fornusöndum 23,48
6 Daníel Ingi Smárason Sif från Lindhof 23,50
7 Sigurður Narfi Birgisson Randver frá Þóroddsstöðum 23,74
8 Tania Højvang Jensen Glúmur frá Þóroddsstöðum 23,84
9 Wictoria Gren Kjarval fra Søtofte 24,08
10 Viivi Soimes- Mattila Mestur fra Lífsvatn 24,62
11 Maren Øyo Abel fra Røysland 25,91
12 Katie Sundin Brumpton Kolbeinn från Fögruhlíð 26,28

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link