Dregið aftur vegna mistaka

  • 10. febrúar 2022
  • Fréttir
Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum

Í gærkvöldi var dregið í rásröð fyrir slaktaumatöltið í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum sem fer fram í kvöld.

Myndband þar sem mistökin koma fram þegar dregið var í rásröð í gærkvöldi hefur farið sem sinueldur um samfélagsmiðla og hefur Alendis nú gefið það út að draga þurfi upp á nýtt en dregið verður í nýja rásröð nú kl. 14:00 á Alendis.

Margir eru á sama máli um að það hafi verið nauðsynlegt að draga aftur í rásröð upp á trúverðugleika deildarinnar en tilgangurinn með útdrættinum er fyrst og fremst að allt sé upp á borðinu.

Í tilkyningu frá deildinni var þessi ákvörðun tekin svo engin vafi leiki á heiðarleika deildarinnar og þeirra sem komu að drættinum í gærikvöldi. „Vegna mistaka í drættinum í gærkvöldi þá hefur stjórn Meistaradeildarinnar tekið þá ákvörðun, svo að engin vafi leiki á heiðarleika deildarinnar og þeirra sem komu að drættinum í gærkvöldi, að það verði dregið aftur og mynduð ný rásröð fyrir slaktaumatöltið í kvöld. Það verður dregið í beinni útsendingu núna kl 14 á Alendis, fulltrúi Meistaradeildarinnar hefur hrært rækilega í pottinum og verður á staðnum,“ segir í tilkynningunni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link