Drög að dagskrá
Drög að dagskrá fyrir gæðingakeppni og kynbótasýningar á Landsmótinu á Hólum 2016 eru nú aðgengileg á heimasíðu mótsins, landsmot.is.
„Mikil vinna liggur að bak við þessi drög, fundað hefur verið með fjölda hagsmunaaðila um land allt og margar hugmyndir hafa verið skoðaðar.
Helstu nýungar í dagskránni eru þær að glæsilegri keppnisdagskrá mun ljúka á laugardagskvöldi en þess í stað verður sunnudagurinn nýttur fyrir ýmiskonar aðra spennandi hestatengda afþreyingu sem kynnt verður fljótlega. Komið er til móts við þá sem hafa viljað fækka hrossum á mótinu með það fyrir augum að létta dagskrána. Megin áherslan í skipulagi dagskrárinnar er auðvitað fyrsta flokks keppni gæðinga og kynbótahrossa við frábærar aðstæður, en Landsmót er líka mannamót og því verður tími til að setjast yfir kaffibolla og ræða málin og auðvitað verður tónlist og önnur afþreying líka á sínum stað, auk fjölbreyttrar fjölskyldudagskrár. Þá verður lögð áhersla á að skapa góðan vettvang fyrir íslenska hrossaræktendur til að kynna sína starfsemi.
Tekið skal fram að hér er um drög að ræða sem geta tekið breytingum á næstu mánuðum.“
Mánudagur 27. júní
Aðalvöllur
9:00 Forkeppni B flokkur gæðinga
12:30 Hlé
13:30 Forkeppni barnaflokkur
16:45 Hlé
17:30 Forkeppni ungmennaflokkur
19:00 Hlé
19:30 Forkeppni ungmennaflokkur
Kynbótavöllur
Dómar kynbótahrossa
Þriðjudagur 28. júní
Aðalvöllur
8:30 Forkeppni A flokkur gæðinga
13:00 Matarhlé
14:00 Forkeppni unglingaflokkur
17:00 Hlé
18:00 Milliriðill B flokkur gæðinga
Kynbótavöllur
Dómar kynbótahrossa
Miðvikudagur 29. júní
Aðalvöllur
9:00 Milliriðill barnaflokkur
12:00 Hlé
13:00 Milliriðill ungmenni
16:00 Hlé
16:30 Milliriðill A flokkur gæðinga
20:00 Tölt
Kynbótavöllur
Dómar kynbótahrossa
Fimmtudagur 30. júní
Aðalvöllur
8:00 Milliriðill unglingaflokkur
11:00 Hlé
11:30 Yfirlit hryssur
15:00 B úrslit börn
15:45 B-úrslit ungmenni
16:30 Skeið 150 – 250 tveir
17:30 Hlé
18:30 B úrslit B-flokkur
19:45 Mótsetning
21:00 B úrslit tölt
Föstudagur 1. júlí
Aðalvöllur
10:00 B úrslit unglinga
10:45 Yfirlit stóðhestar
15:00 Hlé
15:30 Verðlaun hryssur
17:00 Skeið 150 – 250 úrslit
18:00 Hlé
19:00 Ræktunarbú
20:00 B úrslit A flokkur gæðinga
21:00 A úrslit tölt
Laugardagur 2. júlí
Aðalvöllur
10:00 A úrslit unglingar
10:45 A úrslit ungmenni
11:30 A úrslit börn
12:15 Hlé
13:00 Verðlaun stóðhestar
14:30 Afkvæmahestar 1v. og hv. Úrvalssýning kynbótahrossa
17:00 Skeið 100m 18:00 Hlé
19:00 A úrslit B flokkur gæðinga
19:45 Sleipnisbikarinn
20:15 Heiðursviðurkenningar
20:45 A úrslit A flokkur gæðinga
Sunnudagur 3. júlí
Fjölbreytt hestatengd dagskrá sem kynnt verður fljótlega.
Skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna verður kynnt innan tíðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH