Dýraníðsmál enn í rannsókn

  • 14. nóvember 2011
  • Fréttir
Dýraníðsmál enn í rannsókn

Rannsókn á fjórum níðingsmálum sem kærð hafa verið til lögreglunnar undanfarna mánuði eru enn í rannsókn.

 
„Málið er enn í skoðun og það er áríðandi að botn fáist í málin. Lögregla þiggur allar upplýsingar sem fólk kann að búa yfir.  Allar gerðir ábendinga eru þegnar, þó fólki finnist einhverjar hugmyndir fjarstæðukenndar, þá gætu þær komið heim og saman við aðrar upplýsingar,“ segir Einar Ásbjörnsson lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu sem annast rannsóknina. Hann segir að lögreglan fylgi nú eftir þeim vísbendingum sem þegar hafi borist , en vill ekkert um niðurstöður þeirra fullyrða. Hann segir þó augljóst að margt sé líkt með þeim atvikum sem kærð hafa verið.
 
Alls hafa fjórar tilkynningar borist um dýraníð á árinu; í maí fundust djúpir skurðir á innri og ytri kynfærum hryssu í Fossgerði, rétt fyrir utan Egilsstaði. Í júní var tilkynnt um áverka á hrossum í Skagafirði, þá voru þrjú hross skorin í snoppu og kynfæri. Í júlí var tilkynnt um áþekka áverka á tveimur hryssum í Kjós og nú í október var komið að hryssu í hesthúsi að Kjóavöllum með skurði í leggöngum og ytri kynfærum. 
 
Mjög mikilvægt er að tilkynna lögreglu tafarlaust ef grunur vaknar um dýraníð, svo hægt sé að senda lögreglumenn á staðinn til að rannsaka ummerki á vettvangi.
 
Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um þessi hryllilegu mál eru beðnir um að hafa samband við lögreglustöð 4 í síma 444-1190.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link