Dýrðir í Víðidal-

  • 20. febrúar 2011
  • Fréttir
Dýrðir í Víðidal-

Afmælishátíð FT  fór fram í gær fyrir fullri reiðhöll. Talið er að um 700 manns hefðu verið í reiðhöllinni í Víðidal þegar mest var. Dagskráin var þétt og uppfull af fróðleik.

Boðið var upp á 11 sýnikennslur, þar sem reiðkennarar og tamningameistarar FT útskýrðu og sýndu nokkur velvalin atriði við þjálfun eða tamningar. Ísólfur Líndal Þórisson sýndi hvernig hægt er að vinna með skipulagða fótastjórnun við vinnu á grunnskilningi hestsins. Mette Mannseth var með frábæra sýningu þegar hún fjallaði um hugarfar og hringteymingar. Benedikt Líndal sýndi fram á mikilvægi þess að teyma frumtamningahross ríðandi. Þórarinn Eymundsson benti á nokkur atriði varðandi léttleika taumsambands og hvernig knapinn getur stuðlað að réttri líkamsbeytingu hestsins. Sigurbjörn Bárðarsson sýndi hvernig stuðla megi að skilning bendinga á forsendum hestsins. Jakob Svavar Sigurðsson ræddi um andlegt og líkamlegt jafnvægi meðan hann sýndi Auð frá Lundum II. Þórdís Erla Gunnarsdóttir sýndi hvernig hún þjálfar unghross til jákvæðni og markvissra afkasta.

Þá var 15 ára starfssemi reiðkennarabrautar Hóla fagnað. Fimmtán reiðkennarar – einn fyrir hvert útskriftarár – sýndu listir sínar undir stjórn Eyjólfs Ísólfssonar þegar hann hélt erindi um sögu reiðkennarabrautarinnar og þá viðurkenningu sem fagið hefur hlotið með tilkomu námsins.

Þá var kynntur til leiks sjóðinn “Hófadynur – fróðleikur til framtíðar” þar sem tilgangurinn er að safna fjármagni til að þýða erlendar kennslubækur í hestafræðum og reiðmennsku yfir á íslensku. Sjóðurinn var stofnaður fyrir tilstylli Rúnu Einarsdóttur-Zingsheim sem gaf stofnframlag í sjóðinn. Í tilefni þess reið hún brosmild nokkra hringi á meðan þetta verðuga verkefni var kynnt.

Eyjólfur Ísólfsson, Benedikt Líndal og Freyja Hilmarsdóttir voru sæmd gullmerki FT fyrir störf sín og metnað, en þau hafa öll markað mikilvæg spor í þágu hestamennsku á Íslandi.

Lokaatriðið var keppni í hinni nýju keppnisgrein FT “Hestamennska FT”. Þar sýndu sex tamningamenn og reiðkennarar listir sínar en  markmið keppnisgreinarinnar er að hafa samspil manns og hest í öndvegi, þar sem keppendur þurftu að sýna fram á góð samskipti milli manns og hests á 8-10 mínútna frjálsri sýningu. Keppnin var skemmtileg, keppendur höfðu tækifæri á að sýna óvenjulegar æfingar. Þorsteinn Björnsson sýndi t.a.m. alla sýninguna sína með eina hönd á taumi og Anton Pálsson skreið undir hestinn. Metta Mannseth bar hins vegar sigur úr býtum í þessu fyrsta móti “Hestamennsku”. Hún sýndi leikni sína með tvö hross þar sem lokasporið var að fá báða hesta til að taka spænska sporið í takt!

Þótt dagskráin hafi ílengst nokkuð, sem var til þess að áhorfendur voru einir af öðrum farnir að týnast út þegar leið á daginn, var afmælishátíð FT afskaplega fróðleg og skemmtileg. Eiðfaxi óskar FT til hamingju með áfangann.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link