Efst í huga þakklæti fyrir gjöfult ár

  • 30. desember 2023
  • Aðsend grein

Landslið Íslands á Heimsmeistaramótinu í Hollandi Mynd: Jón Björnsson

Nýárskveðja frá A-Landsliðsþjálfara Íslands, Sigurbirni Bárðasyni

Árið sem er að líða er búið að vera viðburðaríkt hjá okkur hestamönnum, miklar væntingar fyrir HM í Hollandi eftir langa bið þar sem fjögur ár voru liðin frá síðasta heimsmeistaramóti.

Athygli vekur hversu uppvöxtur yngri kynslóðanna er að skila sér. Hæfileikamótun hjá Sigvalda Lárussyni og U-21 hjá Heklu Katharínu eru heldur betur að sanna sig. Þetta markvissa starf hjá LH er hreint til fyrirmyndar og mikill heiður að koma að því.

Landsliðsnefnd undir öruggri stjórn Kristins Skúlasonar vinnur frábært starf sem speglast af mikilli framþróun á öllum sviðum íþróttarinnar.

Það sem einkennir þennan frábæra árangur, er samstaða og jákvætt hugarfar LH stjórnarinnar undir styrkri stjórn Guðna Halldórssonar formanns og frábærri stjórn framkvæmdastjórans Berglindar Karlsdóttur og starfsfólki skrifstofunnar.

Vegferð íþróttarinnar er þar höfð að leiðarljósi, árangur okkar á HM í Hollandi var með ólíkindum. Nýjar stjörnur að koma fram á sjónarsviðið og skrá sig í sögubækurnar. Þessi árangur er ekki sjálfgefinn, hann er uppskera af þrotlausri vinnu og sterkri hugsjón sem er að skila sér.

Gott sumar bauð upp á margar hestaferðir um okkar fallega land og var mikil gróska í allri grasrót hestamennskunnar sem minnir okkur á hvernig hesturinn okkar sameinar okkur á margvíslegum vettvangi. Án hans væri íslenska þjóðin ekki hér í dag og enn þann dag í dag gerir hann okkur kleift að ferðast um fjöll og firnindi um landið okkar. Hann er stolt okkar og yndi þar sem hann sameinar okkur á svo margan hátt allt frá því að umgangast hann, ferðast á honum, dægradvöl og sem keppnishestur. Hvílíkur félagi.

Þegar við horfum yfir árið með stolti og setjum stefnuna á LM 2024 í Reykjavík er efst í huga þakklæti fyrir gjöfult ár sem er að líða.

Bjart er framundan með öllum okkar sjálfboðaliðum, æsku og þeim keppendum sem hafa sett mark sitt á framtíðina. Um leið og ég óska öllum til hamingju með árangur sinn á árinu sem er að líða vil ég færa þakklæti til alls þessa góða fólks sem gerði þetta að veruleika.

Óska ykkur gleðilegs árs og friðar og þakka árið sem er að líða.
Sigurbjörn Bárðarson A – landsliðsþjálfari.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link