Efstu knapar á World Ranking listum ársins

  • 19. október 2021
  • Fréttir

Á heimasíðu FEIF er að finna World Ranking lista fyrir árið 2021. Listinn er byggður á tveimur hæstu einkunnum hvers knapa sem hann hefur hlotið frá 1. janúar 2021 og til dagsins í dag.

Íslenska knapa er víða hægt að finna á listunum en efstur í tölti T1 er Árni Björn Pálsson með meðaltalið 9,17 en hann er eini knapinn sem nær yfir níuna. Í efstu sætum er einnig að finna þá Sigurstein Sumarliðason í 250 m. skeiði, Konráð Val Sveinsson í 100 m. skeiði og Þórarinn Ragnarsson í 150m. skeiði.

Efstu knapar á World Ranking lista FEIF í ár

Grein Knapi Land Einkunnir Meðaltal
Tölt T1 Árni Björn Pálsson IS 9.20; 9.13 (of 3) 9.165
Slaktaumatölt T2 Jolly Schrenk DE 8.77; 8.67 (of 6) 8.720
Fjórgangur V1 Steffi Svendsen DK 7.80; 7.73 (of 5) 7.765
Fimmgangur F1 Jón Stenild DK 7.93; 7.63 (of 2) 7.780
250 metra skeið P1 Sigursteinn Sumarliðason IS 21.44; 21.68 (of 5) 21.560
100 metra skeið P2 Konráð Valur Sveinsson IS 7.33; 7.42 (of 5) 7.375
150 metra skeið P3 Þórarinn Ragnarsson IS 14.07; 14.12 (of 2) 14.095
Gæðingaskeið PP1 Magnús Skúlason SE 8.96; 8.46 (of 2) 8.710

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link