Efstu kynbótahrossin

  • 23. desember 2015
  • Fréttir
Fækkun sýndra hrossa miðað við síðustu ár

Nú þegar kynbótadómum er lokið þetta árið er rétt að líta yfir uppskeru ársins en árið var nokkuð gott á kynbótabrautum heimsins. Hátindur kynbótasýningana var kynbótasýningin á Heimsmeistaramótinu í Herning en alls voru dómar kynbótahrossa í ár tæplega tvöþúsund og tvöhundruð.

Sýningar ársins voru 52 en flestar fóru fram á Íslandi (16) og í Þýskalandi (10). Rúmlega 90% sýndra hrossa voru sýnd í fjórum löndum eða Þýskalandi, Danmörku, Íslandi og Svíþjóð. Auk þessara landa voru sýningar haldnar í Austurríki, Kanada, Sviss, Finnlandi, Hollandi, Noregi og Ameríku. Fullnaðardómar voru 1861 en meirihluti sýndra hrossa voru merar eða 69%. Á næstu dögum verður út listað efstu fimm hrossunum í hverjum flokki. Hæst dæmda hrossið í ár er Divar från Lindnäs en hann hlaut 8,78 í aðaleinkunn. Divar var sýndur af Denna Haukssyni í Svíþjóð. Hæstu hæfileika einkunn ársins hlaut Glóðafeykir frá Halakoti á Gaddsstaðaflötum á Hellu en hann hlaut 9,04 í einkunn. Með hæstu sköpulagseinkunn ársins eru tveir stóðhestar Fáfnir frá Þóroddsstöðum og Skaginn frá Skipaskapa en þeir eru með 8,76 í einkunn.

 

Stóðhestar 7 vetra og eldri

Um fjórðungur dóma á stóðhestum var í elsta flokki en sé heildarfjöldi dóma skoðaður þá fylla dómar elstu stóðhesta rúm níu prósent allra dóma ársins. Alls voru dómarnir 164 í þessum flokki samanborið við 543 dóma á hryssum í sama flokki. Á listanum yfir tíu hæst dæmdu hestana í þessum flokki eru flestir frá Svíþjóð (3) eða Íslandi (4). Efstur í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri er alhliða gæðingurinn Divar från Lindnäs. Divar er undan Divu frá Gategården en hún er eina hryssan sem hefur hlotið yfir 9.00 fyrir sköpulag. Divar var sýndur af Denna Haukssyni en Divar er jafn alhliða gæðingur með 9,0 fyrir tölt, skeið, vilja og geðslag, fegurð í reið, samræmi og prúðleika. 

Annar á listanum er Glóðafeykir frá Halakoti en hann var fulltrúi Íslands á Heimsmeistaramótinu í Herning. Glóðafeykir var annar af tveimur hestum sem hlautu yfir 9,00 fyrir hæfileika. Glóðafeykir hafði héðan af verið sýndur sem klárhestur en vann m.a. b flokk gæðinga á LM2012. Daníel Jónsson sýndi Glóðafeyki í ár og þá sem alhliða hest og hlutu þeir 8,5 fyrir skeið og 9,5 fyrir tölt og brokk. Þriðji í þessum flokki er Spóliant vom Lipperthof en Spóliant stóð annar í sínum flokki á heimsmeistaramótinu í Herning. Spóliant hlaut sinn hæst dóm í vor þegar hann var sýndur af Daníel Jónssyni. Hann hlaut 8,95 fyrir hæfileika og 8,43 fyrir sköpulag. Hann hlaut 9,5 fyrir vilja og geðslag og hægt tölt og 9,0 fyrir tölt, skeið, stökk, fegurð í reið.

8.78      Divar Lindnas     Ómi Stav Diva Gategården            Svíþjóð
8.75      Glóðafeykir Halakoti        Rökkvi Hárlaugsstöðum   Glóð Grjóteyri    Ísland
8.74      Spóliant Lipperthof          Lykill Blesastöðum 1A    Sædís Lipperthof Þýskaland
8.71      Mozart Sundsberg            Ísar Keldudal      Vor Österåker      Svíþjóð
8.67      Nói Stóra-Hofi    Illingur Tóftum   Örk Stóra-Hofi    Ísland
8.64      Blær Miðsitju                 Arður Brautarholti           Björk Hólum      Ísland
8.63      Vaki Österåker    Garri Reykjavík   Von Vindheimum            Svíþjóð
8.58      Fimur Egholm    Borði Fellskoti   Silfra Litla-Bergi Danmörk
856      Nói fra Jakobsgården   Trúr frá Auðsholtshjáleigu    Frigg frá Flugumýri   Noregur
8.55      Álfadans Kringeland         Álfasteinn Selfossi           Lilja Kringeland  Noregur
8.55      Þór Votumýri 2   Álfur Selfossi      Önn Ketilsstöðum           Ísland

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link