Eftirlit með lyfjanotkun

  • 23. apríl 2012
  • Fréttir
Eftirlit með lyfjanotkun

Matvælastofnun heldur fræðslufund um eftirlit með lyfjanotkun og lyfjaleifum í dýrum fimmtudaginn 26. apríl kl. 15-16.

 
„Á fundinum verða kynntar nýjar reglur um rafræna skráningu dýralækna á dýralyfjum. Nýja rafræna skráningarkerfið HEILSA verður jafnframt kynnt þar sem dýralæknum ber að skrá notkun og ávísun lyfseðilsskyldra lyfja í dýr. Skráningarkerfið hefur þegar tekið gildi fyrir nautgripi og hross og munu aðrar dýrategundir fylgja í kjölfarið. Tilgangur skráningarinnar er að stuðla að aukinni dýravelferð og neytendavernd með því að auðvelda yfirvöldum að hafa eftirlit með lyfjanotkun í dýrum og lyfjaleifum í búfjárafurðum. 
 
Hægt verður að fylgjast með fræðslufundinum í beinni útsendingu á vef MAST undir Útgáfa – Fræðslufundir. 
 
Fyrirlesarar: 
 
        Auður L. Arnþórsdóttir, sóttvarnadýralæknir hjá Matvælastofnun 
        Björn Steinbjörnsson, dýralæknir lyfjamála hjá Matvælastofnun 
        Kjartan Hreinsson, dýralæknir heilbrigðiseftirlits hjá Matvælastofnun 
 
Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST að norðanverðu (Grafarvogsmegin).
Allir velkomnir,“ segir í tilkynningu frá MAST.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link