Eftirsjá af útfluttum afkvæmum
Þótt hann hafi ekki borið eftirsóknaverðan lit föðurins þá heillaði Svikahrappur frá Borgarnesi margan manninn á Landsmóti 2012. Þessi tinnusvarti alhliðahestur hefur nú yfirgefið landið, fór til Þýskalands fyrr á árinu.
Stóðhesturinn fagurliti Glymur frá Innri-Skeljabrekku drapst þann 14. október sl.. Þykir ekki aðeins missir af þessum kostagóða sendiboða vindótta litarins, því afkvæmi hans hafa eitt af öðru yfirgefið Ísland. Mun áhrifa hans á íslenskan hrossastofn því fremur gæta í Evrópu.
Glymur var aðeins 12 vetra gamall en hafði gert garðinn frægan bæði hérlendis og erlendis. Hann þótti vænlegur gripur til ræktunar. Auk þess að bera sjaldgæfan móvindóttan lit sló Glymur hæfileikamet 4 vetra gamall, þegar hann hlaut 8,67 fyrir kosti. Þótti því mörgum missir af stóðhestinum þegar hann var seldur til Belgíu árið 2011. Eigandi hans var Frans Goetschalckx. Hápunktur í ferli Glyms ytra var efalaust framganga hans á Heimsbikarmótinu innahúss, Worldtolt þar sem hann sigraði bæði stóðhestakeppni og fimmgangskeppni mótsins undir stjórn Þórðar Þorgeirssonar.
Vonir bundnar við efnileg afkvæmi
Glymur á skráð 323 afkvæmi og hafa aðdáendur hans bundið vonir við afkvæmi hans hérlendis, en þau voru rétt undir 100 talsins þegar hann fór utan. Þau efnilegu virðast hins vegar týnast af landi brott eitt af öðru. Af þremur fyrstu verðlauna stóðhestum sem fram hafa komið undan Glym, eru tveir erlendis.
Hæst dæmda afkvæmi hans nú er Gígur frá Brautarholti með 8,53 í aðaleinkunn. Hann fór til Þýskalands aðeins 4 vetra gamall og var fulltrúi Íslendinga á Heimsmeistaramótinu í Berlín í flokki 6 vetra flokk. Vakti hann þar eftirtekt og lenti þar í 2. sæti flokksins. Þessi fagri foli mun eflaust glæða ræktunarstarf Þjóðverja enda ber hann hinn móvindótta lit föðurins. Þótt hann hafi ekki borið eftirsóknaverðan lit föðurins þá heillaði Svikahrappur frá Borgarnesi margan manninn á Landsmóti 2012. Þessi tinnusvarti alhliðahestur hefur nú yfirgefið landið, fór til Þýskalands fyrr á árinu.
Enn geta íslenskir aðdáendur Glyms þó sótt í blóð hans gegnum góða hesta. Hæst dæmdi stóðhestur undan honum hérlendis nú er hinn undravindótti Ægir frá Efri-Hrepp. Hann hlaut í sumar sinn hæsta kynbótadóm, 8,26 í aðaleinkunn og tók sín fyrstu skref í íþróttakeppni síðastliðinn vetur þegar hann keppti í fimmgangskeppni Meistaradeildarinnar.
Auk Ægis hafa nokkrar spennandi hryssur undan Glym gert það gott í kynbótadómum í ár og verður eftirtektavert að sjá hver framtíð verður. Þegar skoðuð eru ósýnd afkvæmi hans á Worldfeng má finna að mörg hver þeirra sem búa að háu kynbótamati eru þegar farin út. Því er ljóst að áhrif Glyms á hrossastofninn hérlendis fara dvínandi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH