„Ég á foreldrum mínum allt að þakka“

  • 20. apríl 2021
  • Fréttir

Alexandra heldur í Skálmöld frá Rútsstöðum mynd: Aðsend

Um allt land er fólk á öllum aldri sem stundar hestamennsku á sínum forsendum hvort sem það er af atvinnu eða áhugamáli. Guðrún Alexandra Tryggvadóttir, sem alltaf er kölluð Alexandra, er ein af þeim, en hún er 26 ára gömul hestakona sem eyðir vinnudeginum í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum áður en haldið er í hesthúsið. „Ég er fædd og uppalin á Egilsstöðum, ég man samt best eftir mér uppí sveit hjá ömmu og afa á Ormarsstöðum í Fellum. Mamma er þar fædd og uppalin og tók mig alltaf með sér. Þegar ég er 13 ára gömul þá flytjum við fjöldskyldan síðan í sveitina.“  
Hesta- og fótaburðarsjúk
Alexandra hefur verið áberandi á keppnisbrautinni þar fyrir austan og stóð hún m.a. efst í opnum flokki á Ístölti Austurlands, sem fram fór fyrir rúmri viku, á Klukku frá Varmamlæk og varði þar með sigur í þeim flokki frá því árið áður. Hún gerði sér einnig lítið fyrir og reið heimaræktaðri hryssu, Golu frá Ormarsstöðum, til sigurs í B-flokki á sama móti. En hvaðan kemur þessi mikli hestaáhugi?
„Mín hestamennska byrjaði þegar ég var 6 ára gömul, en ég var gjörsamlega hestasjúk. Ég hugsaði og talaði ekki um annað en hesta, það hefur lítið breyst. Ég var sísuðandi um að fá að fara á bak hjá mömmu, þá voru bara til tveir smalahestar á bænum. Harðviljugir, og alls ekki allra, það var varla að mamma væri komin í hnakkinn þegar að aðal smala klárinn hennar var þotinn af stað með hana á fullri ferð niður heimreiðina.“ Alexandra lét það þó ekki á sig fá að sjá móður sína á fullri ferð og linnti ekki látum fyrr en hún fékk að prufa þessa orkumiklu hesta. „Ég náði nú samt að suða nóg til þess að fá að fara á klárinn og þó að ég réði alls ekki neitt við hann þá fannst mér þetta alveg geggjað.  Ég sat alltaf útí móa og beið eftir að mamma kæmi úr reiðtúr því að ég ætlaði sko ekki að missa af því að fá að fara eina ferð niður heimreiðina.  Foreldrar mínir keyptu síðan fyrir mig fyrsta hestinn þegar ég var 8 ára gömul. Gálu frá Grund, hún var snyrtilegt og gott reiðhross og frábær kennari. Ég reið mikið út á henni í sveitinni og yfirleitt var ég ein. En það skipti mig engu máli ég fór með hana á öll mót og reiðnámskeið sem að voru í boði. Ég þurfti nú samt frekar fljótlega að fá betri hest, ég var svo fótaburðarsjúk að annað gekk ekki. Ég á foreldrum mínum allt að þakka fyrir það hvar ég er dag. Mamma passaði alltaf uppá að ég kæmist á flest mót og námskeið. Pabbi var alltaf til taks og skuttlaði mér alveg óteljandi margar ferðar með hrossið. Ég tel mig vera alveg ofboðslega heppna með þau og þeirra stuðning. „

Alexandra á Golu frá Omarsstöðum mynd: Aðsend

Frábær aðstaða á Iðavöllum
Hestamennsku sína stundar Alexandra í dag í hesthúsi sem er viðbyggt við reiðhöllina á Iðavöllum, félagssvæði Freyfaxa. “ Í sama húsi, hinumegin við ganginn er svo meistarinn Hans Kjérúlf. Það er yfirleitt sem maður byrjar daginn í hesthúsinu að setjast inná kaffistofu hjá honum, hann segir þá ævinlega nokkrar skrítlusögur eins og hann kallar það, svo er talað mikið um hross.  Hér er frábær aðstaða til þess að stunda hestamennsku, skemmtilegar útreiðarleiðir og keppnisvöllur. Ég er með fjögur hross á járnum núna, tvær hryssur sem ég er að keppa á og tvær 4 vetra hryssur. Þau verða eitthvað fleiri í sumar og haust.
Hvernig er hestamennskan fyrir austan? Nóg um að vera og margir að ríða út? „Það eru öll hesthús full og voru orðin það strax eftir áramót, margir að ríða út og bara gaman.  Mér finnst áhuginn fyrir keppni vera að aukast. Það hefur síðustu ár stundum verið frekar léleg þáttaka á mótum en það er sem betur fer að breytast og mótin farin að verða töluvert fjölmennari. Hér er frábært krakkastarf yfir veturinn, og mjög góð þáttaka.“
Draumur að eignast eigin aðstöðu
Hver eru framtíðardraumar og áform með hestamennskuna hjá þessari hressu og kátu konu? „Það er alltaf draumur hjá mér að eignast aðstöðu fyrir hrossinn og þá helst útí sveit. 
Ég hef mikinn áhuga á hrossarækt, hún er ekki stór hjá mér ennþá en ég fæ 2 folöld í ár, undan Kjérúlf frá Kollaleiru og Dagfara frá Álfhólum. Þetta er svo ótrúlega skemmtilegt, eitthvað extra við það að rækta hrossin temja, og þjálfa og að það nýtist svo í t.d. keppni. Annað keppnishrossið mitt núna er hryssa úr heimaræktun. Ég stefni á að rækta hross af meiri alvöru í framtíðinni.  Planið er að fara í inntökupróf í Hóla. Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að fara þangað síðan ég var 10 ára.“
Eiðfaxi þakkar Alexöndru fyrir spjallið og óskar henni velfarnaðar í leik og starfi!

Keppnishryssan Klukka frá Varmalæk er í uppáhaldi mynd: Jens Einarsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link