„Ég hefði átt að hætta“
„Ég hefði átt að hætta og sé eftir því að hafa ekki gert það strax og ég var viss um að skeifan var farin,“ segir Atli Guðmundsson. Hinn fagri stóðhestur Frakkur frá Langholti, sem var einn af sigurstranglegri hestum í A flokki reif undan sér skeifu þegar hann var að ljúka fyrsta hring á tölti í milliriðli í A flokki.
Í reglum segir að missi hestur undan sér skeifu skuli knapi hægja hann niður á fet og ríða fet það sem eftir er keppninnar [sem sagt að hætta keppni]. Mikil umræða varð á LH þingi 2008 eftir að Sigurbjörn Bárðarson kláraði úrslit á Kolskeggi frá Oddihóli eftir að hann reif undan sér skeifu þegar brokkið var riðið. Í kjölfarið voru umdræddar reglur settar.
„Ég kann reglurnar og veit alveg að ég átti að hætta,“ segir Atli. „Ég var ekki viss til að byrja með en fann að það var eitthvað ekki alveg í lagi á brokkinu. Ég vissi það hins vegar áður en ég fór í skeiðið að hann var búinn að rífa undan sér. En svona er þetta, maður er í afneitun og neitar að trúa því að eitthvað svona sé að gerast.
það er auðvelt að vera vitur eftir á, ég sé eftir þessu núna. Svona fallegur og góður hestur átti þetta ekki skilið af mér. Það er auðvitað mjög svekkjandi þegar svona óhapp verður, það hefði verið skemmtilegra Landsmót að hafa hann í úrslitum, þetta er svo fallegur og góður hestur. En þetta er staðan og henni verður ekki breytt,“ segir Atli.
Þess má geta að Atli er með fjórða hest inn í úrslit, Sálm frá Halakoti, sem er með 8,58 í einkunn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH