Ein stærsta folaldasýning ársins
Hin árlega folaldasýning Sörla verður haldin laugardaginn 24.febrúar á Sörlastöðum. Sýningin byrjar kl 13:00.
Vegleg verðlaun eru í boði og folatollauppboð verður á þekktum stóðhestum. Folald sýningarinnar hlýtur hinn eftirsótta Þjórsárbakkabikar.
Skráningar skal senda á netfangið [email protected].
Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:
-Nafn folalds, uppruni og IS númer
-Nöfn móður og föður folalds
-Litur
-Eigandi og ræktandi folalds
Skráningargjald fyrir folald er 2.000 kr og skráning er ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist. Greiða skal inn á reikning: 0545-26-3615, kennitala: 640269-6509
Vinsamlegast sendið staðfestingu á netfangið [email protected] með nafn folalds sem skýringu.
Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 22.febrúar. Um að gera að sækja folöldin og koma á þessa skemmtilegu sýningu.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum