Eiríkur Jónsson ljósmyndari í Hestablaðinu

  • 25. janúar 2012
  • Fréttir
Á 170 þúsund hestamyndir í vel skipulagðu ljósmyndasafni

Í Hestablaðinu, sem kemur út á morgun, 26. janúar, er fjallað ítarlega um ljósmyndasafn Eiríks Jónssonar, sem tók hestamyndir í 32 ár. Safn hans er mjög umfangsmikið, um 170 þúsund hestamyndir, og 30 þúsund myndir af öðrum toga. Allt safnið er þrautskipulagt. Það tók Eirík þrjú ár að skanna hestamyndirnar af filmum, skanninn var í gangi 24/7. Ef allar hestafilmurnar væru lagðar saman myndi það verða um 7-8 kílómetra ræma.

Lesið um Eirík Jónsson og ljósmyndasafn hans í Hestablaðinu. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511-6622.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link