Ekki ásetningur Eyjólfs

  • 27. mars 2013
  • Fréttir
Ekki ásetningur Eyjólfs

„Það var ekki ásetningur Eyjólfs að hleypa fyrir mig og hann bað mig afsökunar strax að loknum spretti,“ segir Hinrik Bragason, sem hleypti umdeildan sprett á móti Eyjólfi Þorsteinssyni á 150 metra skeiði Meistaradeildarinnar.

Jens Einarsson:

„Þegar þú startar hesti út úr bás í kappreiðum þá getur þú ekkert verið viss um að allt fari eftir áætlun í sprettinum. Það er enginn knapi sem gerir sér það að leik að eyðileggja sprett fyrir öðrum. Dómararnir sáu hins vegar hestinum hjá mér fataðist spretturinn þegar Vera hljóp í veg fyrir hann og mér var boðið upp á að senda inn munnlega kvörtun og fá annan sprett sem ég þáði.

En það er allt í góðu milli okkar Eyjólfs. Hann tók nærri sér að hann skyldi óvart verða valdur að því að trufla sprett hjá öðrum og hann hringdi aftur í mig um kvöldið til að ræða málið. En þetta er bara hlutur sem getur alltaf komið fyrir í svona slag og menn ættu aldrei að láta það vera sín fyrstu viðbrögð að ætla einhvejrum að gera það viljandi,“ segir Hinrik.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link