„Ekki á Landsmót strax“
Þær voru sáttar við árangurinn stúlkurnar í efstu sætunum í unglingaflokki á Ístölti Austurlands á laugardaginn.
Sigurvegarinn var Guðrún Harpa Jóhannsdóttir en hún er nýlega byrjuð í hestamennsku. Keppnishestur hennar heitir Gloppa frá Litla-Garði en hún segist ætla að bíða með að stefna á Landsmót.
Eyjalín varð önnur en hún keppti á Klerksdótturinni Trú frá Ási og var mjög sátt við árangurinn, enda fyrsta keppni þeirra.
Styttu haustið með EiðfaxaTV