Ekki meiri folaldadauði

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Fimm dauðsföll rakin til hrossapestar

Engar sterkar vísbendingar eru um að folaldadauði hafi verið meiri í sumar og haust en áður. Hrossapestin margumtalaða virðist ekki hafa eins alvarlegar afleiðingar varðandi folöld og ungviði og menn óttuðust.

Að vísu eru engar tölur til um tíðni folaldadauða hér á landi yfir höfuð. En hrossabændum og hesteigendum var boðið að koma með folöld sem drepist höfðu í rannsókn að Keldum, eigendum að kostnaðarlaus. Aðeins sautján folöld voru tilkynnt og flutt að Keldum. Í fimm tilfellum má rekja dauða þeirra til streptókokkasýkingar.

Í tilkynningum frá MAST er ítrekað við hestamenn að fylgjast vel með hrossum sínum, einkum folöldum. Gæta þess að þau hafi aðgang að hreinu og góðu vatni og helst steinefnum. Ef beit er ekki næg þarf að byrja að gefa folaldshryssum snemma svo þær geldist ekki upp. Varað er við því að taka folöld undan hryssum og hýsa. Við það geti smitálag magnast upp og orsakað meiri veikindi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link