Ekki seldur, bara fluttur
Í frétt um Kristal frá Auðsholtshjáleigu hér á hestabladid.is segir að bróðir hans Vídalín frá Hamrahóli hafi verið seldur til Noregs. Það er ekki allskostar rétt. Hann er staðsettur í Noregi, en eigendur hans eru þeir sömu og verið hafa frá því í nóvember 2008 og febrúar 2009, samkvæmt WorldFeng, Nicole Pfau og Katrin Sheehan. Hestablaðið biðst velvirðingar á þessari missögn.
Því má bæta við að Vídalín er í þjálfun hjá Christinu Lund og stefnt er með hann í úrtöku fyrir HM2011 í Austurríki. Fyrir skömmu tóku þau Vídalín og Christina þátt í gæðingakeppni í A flokki, urðu í efsta sæti með 8,72 í einkunn og bar þar sigurorð af ekki minni körlum en Tindi frá Varmalæk, svo einhver keppinautur sé nefndur. Eftir HM verður Vídalí svo í hryssum hjá Jens Füchtenschnieder í Þýskalandi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH