Eldjárn skýtur upp stjörnu

  • 1. ágúst 2012
  • Fréttir
Kvika frá Leirubakka var líklega það hross sem kom við kvikuna í flestum hestamönnum á LM2012 í Reykjavík.

Kvika frá Leirubakka var líklega það hross sem flestir hefðu viljað taka með sér heim frá LM2012 í Reykjavík. Hún var sýnd í fjögra vetra flokki hryssna og vakti mikla athygli fyrir fegurð, frábært tölt og útgeislun. Undirstrikaði hún vel góða eiginleika föðurins Eldjárns frá Tjaldhólum, sem er efstur fyrir vilja og fegurð í kynbótamati.

Móðir Kviku er Embla frá Árbakka, sem er hreinræktuð af Kolkuóssætt. Kvika hlaut 8,17 í aðaleinkunn, þar af 9,0 fyrir tölt, vilja og fegurð. Framgangan örugg og æðrulaus, töltið taktfast og fálmandi. Glæsilegur frampartur. Ræktandi er Anders Hansen og eigendur Jakob Hansen og Lilja Gísladóttir. Knapi var Jóhann Kristinn Ragnarsson, sem tamdi hryssuna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link