Norðurlandamót Elísabet Norðurlandameistari í unglingaflokki

  • 6. ágúst 2026
  • Fréttir

Elísabet Líf Sigvaldadóttir og Dyggur fran Stummelbol Norðurlandameistarar í unglingaflokki Mynd: CL Foto

Þau voru spennandi A úrslitin í unglingaflokki en mjótt var á munum og skiptust knapar á efsta sæti.

Fór það svo að Elísabet Líf Sigvaldadóttir og Dyggur fran Stummelbol unnu með 8,50 í einkunn. Fyrsti Norðurlandameistaratitilinn til Íslands og fyrsti titill Elísabetar.

Í öðru sæti varð Alice Edvinsson Karelíusson á Riddara frá Hofi með 8,43 í einkunn og í því þriðja Isabella Larsson á Leó fran Anghaga með 8,41 í einkunn. Báðar keppa þær fyrir hönd Svíþjóðar.

Næst á dagskrá eru A úrslit í A flokki ungmenna. Hægt er að sjá dagskrá og ráslista á HorseDay og horfa á mótið í beinni á EiðfaxaTV.

Niðurstöður úr A úrslitum í unglingaflokki
Sæti Knapi Hross Land Einkunn
1 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Dyggur från Stummelbol Ísland 8,50
2 Alice Edvinsson Kareliusson Riddari frá Hofi Svíþjóð 8,43
3 Isabella Larsson Leó från Änghaga Svíþjóð 8,41
4-5 Saga Knutsen Eiriksdottir Ýmir frá Selfossi Noregur 8,38
4-5 Nike Jakobsson Sleipnir frá Ósi Svíþjóð 8,38
6 Hannah Eggen Bragstad Þorsti frá Ytri-Bægisá I Noregur 8,37
7 Andreas Lie Sørensen Djásn frá Arnbjörgum Noregur 8,36
8 Rigmor Balle Leistur frá Hólum Danmörk 8,32
9 Anette Korhonen Alísa frá Strandarhjáleigu Finnland 8,25

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link