Elsa Albertsdóttir ráðin í stöðu ábyrgðarmanns í hrossarækt

  • 18. september 2020
  • Fréttir

Elsa Albertsdóttir hefur verið ráðin sem ábyrgðarmaður í hrossarækt

Elsa Albertsdóttir hefur verið ráðin til að taka við starfi Þorvaldar Kristjánssonars sem ræktunarleiðtogi íslenska hestsins. Elsa hefur verið í starfi hjá RML frá síðustu áramótum þegar tölvudeild Bændasamtakanna kom yfir til RML  og hefur séð um keyrslur á kynbótaútreikningum og þróun þess ásamt því að vera  kynbótadómari en hún hefur verið alþjóðlegur dómari í 13 ár.

Elsa er doktor í erfða og kynbótafræði og hefur víðtæka reynslu af hestamennsku svo sem við þjálfun, kennslu, sem kynbóta, gæðinga og íþróttadómari ásamt því að vinna beint við utanumhald á ræktunarstarfinu.  Menntun Elsu og áralöng reynsla af störfum tengdri ræktun íslenska hestsins mun því nýtast vel í þessu starfi sem byggir á því að halda utan um ræktunarstarfið og ekki síst ráðgjöf og fræðslu til hestamanna og ræktenda.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar