Norðurlandamót Elva Rún og Kvasir sigurvegarar B-úrslita í tölti

  • 8. ágúst 2026
  • Fréttir

Ljósmynd: Cassandra Laikmets

Þrír íslenskir knapar tóku þátt í úrslitunum

Næst síðasti keppnisdagur Norðurlandsmóts er nú í fullum gangi og nú seinni partinn fara fram hin ýmsu B-úrslit. Hægt er að horfa á Norðurlandamótið í beinni á EiðfaxaTVen allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay.

Í B-úrslitum í ungmennaflokki í tölti voru þrír íslenskir knapar á meðal þátttakenda. Elva Rún Jónsdóttir og Kvasir frá Steinnesi voru fremst á meðal jafningja og unnu sér þátttökurétt til A-úrslita með 7,17 í einkunn. Elísabet Líf Sigvaldadóttir og Dyggur från Stummelbol urðu henni næst með 6,89 í einkunn og Fanndís Helgadóttir og Ötull frá Narfastöðum náðu níunda sætinu með 6,44 í einkunn.

B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Elva Rún Jónsdóttir Kvasir frá Steinnesi 7,17
7 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Dyggur från Stummelbol 6,89
8 Pernille Hansen-Christiansen Bakkus fra Grundet Hus 6,56
9 Fanndís Helgadóttir Ötull frá Narfastöðum 6,44
10 Molly Eriksson Erró frá Ármóti 6,22

Í unglingaflokki var það hin norska Mia Skavhaug á Atgeiri frá Margrétarhofi sem tryggði sér þátttökurétt í A-úrslitum með 6,39 í einkunn.

B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Mia Skavhaug Atgeir frá Margrétarhofi 6,39
7 Ella Oxaas-Egge Hrafnkatla fra Nyberg 5,72
8 Lilja Kontio Dásemd frá Traðarholti 5,67
9 Molly Öberg Lótus från Ödegården 4,89

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link