Elvar og Bjarni Íslandsmeistarar í skeiðgreinum
Veðrið leikur við áhorfendur Íslandsmótsins. Sólin skín á Brávöllum og golan kælir keppendur niður á upphitunarbrautinni. Framundan eru æsispennandi úrslit í flestum greinum, úrslit í tölti hefjast kl. 13 og þar á eftir fylgja úrslit í slaktaumatölti, fjórgangi og fimmgangi.
Í morgun varð Elvar Einarsson og Kóngur frá Lækjarmóti Íslandsmeistarar í 250 metra skeiði. Besti tími þeirra var á 21,89 sekúnda. Sigurbjörn Bárðarson og Flosi frá Keldudal urðu í öðru sæti og Daníel Ingi Smárason í því þriðja á Herði frá Reykjavík.
Úrslit í 250 skeiði urðu eftirfarandi:
1. Elvar Einarsson og Kóngur frá Lækjarmóti 21,89
2. Sigurbjörn Bárðarson og Flosi frá Keldudal á 22,02
3. Daníel Ingi Smárason og Hörður frá Reykjavík á 22,51
4. Ævar Örn Guðjónsson og Gjafar frá Þingeyrum á 23,16
5. Teitur Árnason og Korði frá Kanastöðum á 23,22
6. Árni Björn Pálsson og Korða frá Steinnesi á 23,33
7. Þórir Örn Grétarsson og Blossi frá Skammbeinsstöðum 1 á 23,81
8. Veronika Eberl og Tenór frá Norður – Hvammi á 24,95
9. Steinn Haukur Hauksson og Hraðsuðuketill frá Borgarnesi á 26,97
Þá varð Bjarni Bjarnason Íslandsmeistri í 150 metra skeiði þegar og Vera frá Þóroddsstöðum fóru metranna 150 á 14,51 í morgun. Jakob Svavar Sigurðsson og Funi frá Hofi hlutu silfrið og Sigurbjörn Bárðarson og Óðinn frá Búðardal urðu þriðju.
Úrslit í 150 metra skeiði urðu eftirfarandi:
1. Bjarni Bjarnason og Vera frá Þóroddsstöðum 14,51
2. Jakob Svavar Sigurðsson og Funi frá Hofi á 14,57
3. Sigurbjörn Bárðarson og Óðinn frá Búðardal á 14,65
4. Elvar Einarsson og Hrappur frá Sauðárkróki á 14,71
5. Teitur Árnason og Veigar frá Varmalæk á 14,83
6. Þráinn Ragnarsson og Gassi frá Efra Seli á 15,05
7. Ragnar Tómasson og Gríður frá Kirkjubæ 15.08
8. Þórdís Gunnarsdóttir og Lilja frá Dalbæ á 15,10
9. Bjarni Bjarnason og Hrund frá Þóroddsstöðum á 15,26
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH