Endurskin mikilvæg

  • 9. desember 2013
  • Fréttir
Nauðsynlegt að vera sýnileg í skammdeginu.

Eins og fram kom í öryggisblaði Eiðfaxa sem kom út um daginn þá hefur öryggisnefnd LH verið að vinna að öryggismálum hestamanna. Eitt af verkefnum nefndarinnar var að setja saman endurskinsmerkjapakka fyrir hestamenn sem verður í boði í verslunum.

Í pakkanum er m.a. merki til að setja á fatnað, endurskin til að festa á ístöð, en auk þess eru endurskinsmerki sem hægt er að festa á fætur hrossanna. 

Þetta er virðingarvert framtak hjá hópnum, en átakið er unnið í samstarfi við VÍS.

Jafnframt hefur hópurinn sett saman nokkurs konar sýningu á endurskini og notkun þess sem hestamannafélög geta notað til að kynna þetta öryggisatriði innan síns félags.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link