Engar tafir á Landsmótsmálum

  • 17. maí 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Haraldur Þórarinsson, formaður LH

Vinnum samkvæmt samþykktum landsþings LH

Haraldur Þórarinsson, formaður LH, segir að engar tafir séu á afgreiðslu landsmótsmála. Ferlið sé samkvæmt þeim ályktunum sem samþykktar voru á landsþingi LH í haust. Þar hafi verið skipuð sú nefnd sem Jónas Vigfússon, formaður Funa í Eyjafirði vísar til í bréfi sínu (sjá hér á vefnum).

„Þegar nefndin skilaði skýrslu sinni lagði stjórn LH til við nefndina að hún færi um landið og kynnti innihald hennar. Niðurstaðan varð hins vegar sú að skýrslunni var dreift á Netinu svo menn gætu lesið hana og rætt heima í héraði.

„Aðalatriðið er að það náist bærileg sátt um þessi mál áður en frekari ákvarðanir eru teknar um staðarval Landsmóta. Formannafundur LH verður haldinn í haust og þar verða væntanlega forystumenn hestamannafélaganna með ályktanir frá sínum félögum. Eftir þann fund mun stjórn LH taka ákvarðanir um hvar næstu Landsmót verða haldin,“ segir Haraldur.

Þess má geta að formannafundur Félags hrossabænda ályktaði nýlega í framhaldi af skýrslu Landsmótsnefndarinnar. Fundurinn leggur til að Lansdmót verði haldin til skiptis á Norður- og Suðurlandi og að mótin verði haldin á landsbyggðinni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link