Engar upplýsingar um árangur knapa
Ekkert formlegt svar hefur borist frá LH við fyrirspurn frá Hestum og hestamönnum um að fá upplýsingar um afrekaskrá þeirra knapa sem tilnefndir eru til knapaverðlauna ársins. Upplýsingar um árangur knapa hér á landi er hvergi aðgengilegur á einum stað. Knapar ársins hafa nú þegar verið tilnefndir þótt ekki sé hægt að fá afrekaskrá þeirra á tölvutæku formi.
Sportfengur, gagnabanki sem á að halda utan um árangur knapa og hesta, er ennþá í skötulíki að því er virðist, þótt hann hafi verið í notkun um nokkurt skeið. Upplýsingar frá hestamótum ársins eru götóttar og í sumum tilfellum vantar niðurstöður úr sumum greinum frá hestamóti þótt aðrar hafi verið skráðar inn. Allnokkrar upplýsingar eru þó skráðar í bankann og hann er tengdur við WorldFeng. Sérstakt aðgangsorð þarf til að nálgast upplýsingarnar.
Til samanburðar þá eru allar kynbótasýningar skráðar veflægt inn í WorldFeng. Það er að segja, viðkomandi sýning er Nettengd við gagnabankann. Allar upplýsingar skrást inn um leið og þær eru slegnar inn af starfsmönnum sýninganna. Hægt er að lesa dóma nokkrum mínútum eftir að hrossið hefur lokið sýningu. Tekið skal fram að starfsmenn kynbótasýninga eru á launum en þeir sem vinna fyrir LH gera það í sjálfboðavinnu í flestum tilfellum.
Í þessu samhengi er þó vert að benda á heimasíðu FEIF, www.feif.org, þar sem nær öll vinna er unnin í sjálfboðavinnu, líkt og hjá LH. Þar er hægt að finna mikið magn upplýsinga um árangur knapa og hesta FEIF þjóðanna, án þess að þurfa að skrá sig sérstaklega inn á síðuna. Hægt er að smella á nafn knapa (eða hests) og þá birtast allar skráðar upplýsingar um árangur hans. Allar FEIF þjóðirnar, aðrar en Ísland, nota IceTest gagnaforritið til að skrá árangur knapa og hesta á hestamótum. IceTest er svokallað „open source“ forrit, sem allir geta sótt frítt á Netið og notað sér að kostnaðarlausu. Ísland hefur ekki viljað notfæra sér IceTest. Það eru því þrjú gagnakerfi í umferð í Íslandshestaheiminum, WorldFengur, SportFengur og IceTest.
Tilnefningar LH eru þessar:
EFNILEGASTI KNAPINN Agnes Hekla Árnadóttir Arna Ýr Guðnadóttir Arnar Bjarki Sigurðsson Hekla Katarína Kristinsdóttir Kári Steinsson
ÍÞRÓTTAKNAPI Eyjólfur Þorsteinsson Hinrik Bragason Jakob Sigurðsson Sigurbjörn Bárðarson Viðar Ingólfsson
GÆÐINGAKNAPI Eyjólfur Þorsteinsson Sigurbjörn Bárðarson Vignir Siggeirsson Sigursteinn Sumarliðason Þórarinn Eymundsson
SKEIÐKNAPI Árni Björn Pálsson Elvar Einarsson Sigurbjörn Bárðarson Sigurður V. Matthíasson Sigurður Sigurðarson
KYNBÓTAKNAPI ÁRSINS Bjarni Jónasson Bergur Jónsson Jakob Sigurðsson Þorvaldur Árni Þorvaldsson Þórarinn Eymundsson
KNAPI ÁRSINS Eyjólfur Þorsteinsson Hinrik Bragason Jakob Sigurðsson Sigurbjörn Bárðason Sigursteinn Sumarliðason
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson