Enginn skortur á alhliða gæðingum
Landsmót Hestamanna er framundan í Víðidal í Reykjavík dagana 1.-7. júlí. Að loknum úrtökum hestamannafélaga er gaman að velta fyrir því sér hvernig staðan er á stöðulistum fyrir mótið en ljóst er að mikið gæðingaval verður á mótinu.
Í A-flokki skal sýna tölt á frjálsum hraða, brokk, fet, stökk og skeið. Einkunnir fyrir vilja og fegurð í reið eru þá einnig gefnar og gilda þær tvöfalt ásamt tölti og skeiði. Í sérstakri forkeppni er sýnt tölt, brokk og skeið.
Álfamær frá Prestsbæ sýnd af Árna Birni Pálssyni hlaut hæstu einkunn vorsins, 8,88. Annar á stöðulistanum er Þráinn frá Flagbjarnarholti sem sýndur er af Þórarni Eymundssyni og hlaut hann 8,82 í einkunn. Þriðju á stöðulistanum er svo Leynir frá Garðshorni á Þelamörk með 8,79 í einknn sýndur af Eyrúnu Ýr Pálsdóttur.
Sérstök forkeppni í A-flokki fer fram þriðjudaginn 2.júlí og milliriðlar fimmtudaginn 4.júlí. Sigurvegari er svo krýndur á úrslitadegi Landsmóts þann 7.júlí.
30 efstu hestar á stöðulistum í A-flokki.
| # | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Árni Björn Pálsson | IS2015201167 Álfamær frá Prestsbæ | 8,88 |
| 2 | Þórarinn Eymundsson | IS2012181608 Þráinn frá Flagbjarnarholti | 8,82 |
| 3 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | IS2015164068 Leynir frá Garðshorni á Þelamörk | 8,79 |
| 4 | Guðmundur Björgvinsson | IS2015181912 Gandi frá Rauðalæk | 8,77 |
| 5 | Ásmundur Ernir Snorrason | IS2014181118 Askur frá Holtsmúla 1 | 8,75 |
| 6 | Árni Björn Pálsson | IS2015186939 Seðill frá Árbæ | 8,74 |
| 7 | Teitur Árnason | IS2012181660 Atlas frá Hjallanesi 1 | 8,74 |
| 8 | Fredrica Fagerlund | IS2016155640 Salómon frá Efra-Núpi | 8,74 |
| 9 | Sigursteinn Sumarliðason | IS2017186512 Liðsauki frá Áskoti | 8,71 |
| 10 | Bjarni Jónasson | IS2014157768 Spennandi frá Fitjum | 8,69 |
| 11 | Sigurður Sigurðarson | IS2011188560 Rauðskeggur frá Kjarnholtum I | 8,69 |
| 12 | Finnbogi Bjarnason | IS2013158455 Einir frá Enni | 8,68 |
| 13 | Sigurður Vignir Matthíasson | IS2009157783 Hlekkur frá Saurbæ | 8,67 |
| 14 | Elvar Þormarsson | IS2015280688 Framtíð frá Forsæti II | 8,67 |
| 15 | Hlynur Guðmundsson | IS2018184438 Kraftur frá Svanavatni | 8,66 |
| 16 | Viðar Ingólfsson | IS2017182466 Rúrik frá Halakoti | 8,66 |
| 17 | Skapti Steinbjörnsson | IS2014257354 Lokbrá frá Hafsteinsstöðum | 8,66 |
| 18 | Daníel Jónsson | IS2011137210 Goði frá Bjarnarhöfn | 8,66 |
| 19 | Björg Ingólfsdóttir | IS2013158707 Kjuði frá Dýrfinnustöðum | 8,65 |
| 20 | Sigurbjörn Bárðarson | IS2008186651 Nagli frá Flagbjarnarholti | 8,65 |
| 21 | Guðmunda Ellen Sigurðardóttir | IS2014258841 Esja frá Miðsitju | 8,64 |
| 22 | Elín Magnea Björnsdóttir | IS2010125110 Glúmur frá Dallandi | 8,64 |
| 23 | Guðmundur Björgvinsson | IS2016284171 Þrá frá Fornusöndum | 8,64 |
| 24 | Bergrún Ingólfsdóttir | IS2010181398 Roði frá Lyngholti | 8,63 |
| 25 | Daníel Gunnarsson | IS2014158840 Strákur frá Miðsitju | 8,63 |
| 26 | Hafþór Hreiðar Birgisson | IS2014125087 Þór frá Meðalfelli | 8,63 |
| 27 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | IS2011258623 Nóta frá Flugumýri II | 8,63 |
| 28 | Ólafur Andri Guðmundsson | IS2016286910 Móeiður frá Feti | 8,63 |
| 29 | Sylvía Sigurbjörnsdóttir | IS2008187685 Villingur frá Breiðholti í Flóa | 8,62 |
| 30 | Viðar Ingólfsson | IS2015158097 Vigri frá Bæ | 8,62 |
Geisli frá Sælukoti vann A-flokk á Landsmóti tvisvar sinnum sýndur af Steingrími Sigurðssyni en Sigurður Sigurðarson hefur einnig unnið A-flokk tvisvar sinnum á þeim Kolskeggi frá Kjarnholtum og Fróða frá Staðartungu.
Sigurvegarar A-flokks gæðinga á Landsmóti fengið af vef LH.
A-flokkur
2022 – Kolskeggur frá Kjarnholtum 9,01, knapi Sigurður Sigurðarson
2018 – Hafsteinn frá Vakurstöðum 9,09, knapi Teitur Árnason
2016 – Hrannar frá Flugumýri 9,16, knapi Eyrún Ýr Pálsdóttir
2014 – Spuni frá Vesturkoti 9,30, knapi Þórarinn Ragnarsson
2012 – Fróði frá Staðartungu 8,94, knapi Sigurður Sigurðarson
2011 – Ómur frá Kvistum 8,98, knapi Hinrik Bragason
2008 – Aris frá Akureyri 8,86, knapi Árni Björn Pálsson
2006 – Geisli frá Sælukoti 9,17, knapi Steingrímur Sigurðsson
2004 – Geisli frá Sælukoti, knapi Steingrímur Sigurðsson
2002 – Adam frá Ásmundarstöðum 8,96, knapi Logi Þ. Laxdal
2000 – Ormur frá Dallandi 9,22, knapi Atli Guðmundsson
1998 – Galsi frá Sauðárkróki 8,75, knapi Baldvin A. Guðlaugsson
1994 – Dalvar frá Hrappsstöðum 8,75, knapi Daníel Jónsson
1990 – Muni frá Ketilsstöðum 9,26, knapi Trausti Þór Guðmundsson
1986 – Júní frá Syðri-Gróf 8,60, knapi Einar Öder Magnússon
1982 – Eldjárn frá Hvassafelli 8,67, knapi Albert Jónsson
1978 – Skúmur frá Stórulág 8,94, knapi Sigfinnur Pálsson
1974 – Núpur frá Kirkjubæ 9,24, knapi Sigurfinnur Þorsteinsson
1970 – Blær frá Langholtskoti 8,78, knapi Hermann Sigurðsson
*Birt með fyrirvara um að öll félög hafi skilað inn niðurstöðum af sínum mótum.
*Miðað við stöðulista fimmtudaginn 20. júní.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH