Enn hægt að skrá sig í úrtöku

  • 4. júní 2015
  • Fréttir
Skráning á Opna íþróttamót Spretts lýkur á sunnudag.

Skráning á Opna Íþróttamót Spretts (WR) og Úrtaka fyrir HM er enn í gangi en henni  lýkur á miðnætti 7 júni.

„Þeir sem keppa í skeiði – hvort sem er í úrtöku eða íþróttamóti –  vinsamlegast athugið að fyrri umferðin fer fram seinnipart miðvikudags 10 júni og seinni umferðin verður á laugardag 13 júni.

Ungmenni vinsamlegast athugið að tölt, fimmgangur og fjórgangur verða riðin sem T1, V1 og F1.

Ef þið lendið í einhverjum vandræðum við skráningu þá vinsamlegast sendið tölvupóst á Karen netfangið [email protected] eða á Huldu á netfangið [email protected],“ segir í tilkynningu frá Spretti.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link