Er tamning og tamning það sama?
Mikilvægt er þegar ung hross eru send í tamningu að eigandin viti við hverju er að búast? eftir 1, 2, 3 mánuði, hver temur? reynsla?, menntun?
Frumtamningareglugerð sem finna má á vefsíðu Félags tamningamanna, tamningamenn.is
„Víða er verið að temja hross og áherslur misjafnar. Það vantar heildstæðari vinnubrögð heilt yfir þannig að við séum öll að tala sama tungumál þegar við tölum um fortamningu, frumtamningu og grunnþjálfun. Að trippið hafi fengið traust, jákvæða upplifun af ferlinu og sé tilbúið í framhald. Í frumtamningareglugerðinni er miðað við tamningatímabil sem er 10-12 vikur eða allt að þrír mánuðir, 4-5 stundir á viku. Á þeim tíma er byggt upp jákvætt viðhorf hjá trippinu og æfingar gerðar sem styrkja leiðtogahlutverk tamningamannsins. Trippinu er kennt að teymast með manni og á hesti, unnið er með trippið við hönd og í taumhring, það undirbúið undir járningu og reið. Síðan fer fram byrjunarþjálfun undir manni. Grunngangtegundir eru þjálfaðar, svo og skilningur á ábendingum. Markmiðið er að við lok frumtamningatímabilsins sé hesturinn óttalaus og virði manninn sem leiðtoga. Stendur kyrr þegar farið er á bak, kyssir ístöð, fetar af stað á slökum taum o.s.f.r.v.
„Auðvitað eru hross mjög misjöfn og taka þarf tillit til geðslags og ganglags og fleira. Ekki má búast við því að það sé búið að gangsetja þau eftir eins mánaðar tamningu. Mikilvægt er að trippin séu þjál og óhrædd, þau færi afturhlutann í umgengni og snúi sér alltaf að manninum, færa sig að framan og aftan. Að það ríki traust og virðing í hesthúsinu. Eigandinn þarf að geta talað við tamningamanninn um sínar væntingar. Tamningamaðurinn þarf að útskýra sín vinnubrögð og hverju eigandinn má búast við að lokinni frumtamningu. Tamningamaðurinn þarf að láta eiganda vita ef hann er með annan í vinnu hjá sér og temur ekki allt sjálfur þó hann hafi yfirumsjón með hrossinu og fá samþykki fyrir því. Einnig er mikilvægt að vera í samaskiptum á einhverra vikna fresti og fara hreinskilningslega yfir stöðuna. Það er öllum fyrir bestu. En stundum er pressan of mikil bæði hjá tamningamönnum og eigendum. Maður á ekki að vera kominn í reiðtúr áður en hesturinn kann eitthvað og treystir knapanum, eða ríða tölt þegar engar forsendur eru fyrir því. (Kom fram ì viđali viđ Sùsönnu form FT À hestamennska.is)
Mörg hross eru riðin en ekki tamin/menntuð. Dýrmætt er að hesturinn búi að grunnmenntun og góðri upplifun sem auðvelt er að rifja upp t.d. ef knapi og hestur lenda í vanda seinna meir.
Enn í dag eru seldir hestar sem vantar grunnvinnuna í, nýjir eigendur lenda vanda sem erfitt er að leysa því grunnin vantar.
Við teljum að það sé klárlega gott fyrir hestamennskuna í landinu og tímabært að taka upp aftur utanskólapróf. Verknám – verkfærni og næmni í fortamningu, frumtamningum og grunnþjálfun. Til að samræma vinnubrögð, auka gæði og þekkingu starfandi tamningamanna. Það mun auka þekkingu, metnað og gæði allra sem starfa greininni hvaðan sem fyrri menntun, þekking og reynsla kemur. Og ekkki síst fyrir hesteigendur til að vera meðvitaðri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH