Er til rétt líkamsbeiting í röngum takti?

  • 29. febrúar 2020
  • Fréttir

Í starfi mínu fyrir Eiðfaxa hef ég undanfarið mætt á mörg keppniskvöld í hinum fjölmörgu keppnisdeildum sem nú fara fram. Eins og gefur að skilja á maður ekki heimagengt á öll mót en til stendur að reyna að mæta allavega einu sinni á hverja keppnisdeild.

Ég hef rætt við mikið af hestamönnum á þessum ferðum mínum og í þeim samtölum verður fólki oft tíðrætt um líkamsbeitingu hrossa.

Í grunninn á rétt líkamsbeiting að minnka líkurnar á óþarfa álagi á liðamót og vefi í kringum þau og þannig stuðla að betri líðan hrossa og aukinni endingu. Þannig er rétt líkamsbeiting grundvöllur fyrir vellíðan, mýkt, léttleika og endingu.

Það sem vekur þó athygli mína er að á sama tíma og fólk lofsamar hestinn sem gengur um reiðhallargólfið í „réttri“ líkamsbeitingu, er það að hann er á sama tíma ekki á þeim takti sem skilgreining okkar á gangtegundinni segir til um. Því hef ég stundum velt því fyrir mér hvort til sé rétt líkamsbeiting í röngum takti?

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link