Erlingur og Skrugga unnu Stjörnutölt 2013
“Á laugardagskvöld var haldið hið árlega stjörnutölt í skautahöllinni á Akureyri. Þetta var skemmtilegt og spennandi mót. Eftir forkeppni var Jón Helgi Sigurgeirsson efstur á hestinum Töfra, á eftir honum kom Sölvi síðan Hans og svo Erlingur. Eins og alltaf þá velja áhorfendur fimmta keppendan sem kemst inn í úrslitin, að þessu sinni völdu áhorfendurnir Júlíu Lindmark á hestinum Lómi. Hún var fimmta eftir forkeppnina. Í ár var það Erlingur Ingvarsson sem vann mótið á merinni Skruggu frá Kýrholti hún er 9 vetra undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum,“ segir á heimasíðu Léttis
Úrslitin voru eftirfarandi:
1 Erlingur Ingvarsson, Skrugga 7.54
2 Sölvi Sigurðarson,Þokkadís 7.46
3 Júlía Lindmark, Lómur 7.42
4 Jón Helgi Sigurgeirsson, Töfri 7.38
5 Hans Friðrik Kjerúlf, Flans 7.12
myndband: Þórir Ó. Tryggvason
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH