Ertu að spá í að byrja í hestum ?

  • 19. september 2013
  • Fréttir
Skráðu þig á reiðnámskeið hjá iHorse og Fáki

Langar þig að byrja í hestamennskunni, langar þig á reiðnámskeið en vantar hestinn, þarftu að yfirvinna hræðslu eða verða öruggari með sjálfan þig sem knapa?  Þá er upplagt tækifæri að skrá sig á reiðnámskeið hjá iHorse og Fáki sem verður haldið í Reiðhöllinni í Víðidal í október.

Reiðámskeiðið er 10 tímar og hefst í byrjun október og það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig og mæta. Allt annað er innifalið, hjálmar, reiðtygi og öryggir og góðir hestar.

Verð kr. 29.000

Skráning  [email protected] (fyrir 1. okt og ath. takmarkaður fjöldi sem kemst að)

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link