Eru vikurvellir barn síns tíma?
Vallaraðstæður á Hvammsvelli voru til fyrirmyndar á Íslandsmótinu í hestaíþróttum sem haldið var á félagsvæði Fáks í Reykjavík. Nýtt undirlag var sett á völlinn skömmu fyrir mót og var það mat keppenda að völlurinn væri mjúkur og þæginlegur.
„Gamla undirlagið var orðið leiðinlegt. Það var mikið riðið á vellinum og vikurinn orðinn slæmur. Það fór af stað umræða um að finna nýtt efni og var tekin ákvörðun um að nota sama efni notað er í reiðvegina og er fólk ánægt með það” segir Hjörtur. Knapar mótsins lýstu yfir ánægju með efnið.
Grein um vallaraðstæður má nálgast í 8. tölublað Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH