Eyfirðingar sameinast í stuðningi við Landsmót á Melgerðismelum
Léttismenn ákváðu að draga til baka umsókn sína um að halda Landsmót 2014 á félagssvæði sínu að Hlíðarholti á aðalfundi sem haldinn var 23. nóvember sl. og ætla ekki að sækja um fyrir árið 2016. Fundarmenn lýstu jafnframt yfir stuðningi við umsókn hestamannafélagsins Funa sem hafa sótt um að halda Landsmót á Melgerðismelum 2014. Einnig hefur Hrossaræktarsamband Eyfirðinga og Þingeyinga lýst yfir stuðningi sínum á umsókn Funa með ályktun sem samþykkt var haustfundi þann 24. nóvember.
Valið á Landsmótsstað árið 2014 stendur því á milli Gaddstaðaflata við Hellu, Vindheimamela í Skagafirði og Melgerðismela í Eyjafirði.
Umsóknarfrestur fyrir mótið 2016 rennur út á morgun en aðeins ein formleg umsókn hefur borist Landssambandinu, frá Rangárbökkum ehf. sem býður Gaddstaðaflatir.
Að sögn Haraldar Þórarinssonar kom fram að LH muni tilkynna Landsmótsstaði 2014 og 2016 um miðjan desember.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH