Eyjólfur kynbótaknapi ársins í Svíþjóð

  • 14. nóvember 2020
  • Fréttir

Eyjólfur á Oliver frá Kvistum á HM2015 mynd: Eiðfaxi

Eyjólfur Þorsteinsson er kynbótaknapi ársins 2020 í Svíþjóð en þetta var tilkynnt á rafrænum fundi sænsku íslandshestasamtakanna nú rétt í þessu. Aðrir tilnefndir voru Erlingur Erlingsson, Garðar Gíslason, Vignir Jónasson og Fredrik Rydström

Eyjólfur sýndi 27 hross í 29 sýningum. Meðalaldur þeirra var 8,1 ár. Meðaleinkunn þeirra fyrir sköpulag var 8,00, meðaleinkunn hæfileika. 7,90 og meðaltal aðaleinkunnar 7,94.

Eiðfaxa óskar honum til hamingju með árangurinn og útnefninguna. Íslenski hesturinn á sendiherra um allan heim sem hjálpa til við að koma honum á framfæri og Eyjólfur er einn þeirra.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link