Eyrarmótaróðin á Hólum 2020 – OPIÐ FYRIR ALLA

  • 27. janúar 2020
  • Fréttir

Stúdentafélag Hólaskóla heldur árlega opna mótaröð í hestaíþróttum. Þátttaka í formlegri keppni er mikilvæg æfing fyrir upprennandi atvinnuknapa og með þessari mótaröð, sem er haldin í Þráarhöllinni á Hólum, gefst nemendum Hestafræðideildar tækifæri til slíks, án þess að þurfa að fara með hestana sína af staðnum, sem er bæði tímafrekt og kostnaðarsamt.

Fyrsta mótið er haldið núna á föstudaginn 31.janúar og hefst keppni klukkan 19:00. Þá verður keppt í fjórgangi V2 (þar sem fegurðartölt kemur í stað yfirferðartölt).

Veglegir vinningar verða í boði en það er hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur á Selfossi sem gefa verðlaun í fjórgangi.

Hægt er að skrá sig með því að smella hér

Skráningu lýkur fimmtudaginn 30. Janúar (klukkan 20:00).

Skráningargjald: 2000 kr greiðist á staðnum eða eða inn á reikning Studentafélagsins (Kt 551096-2979 Rkn 0310-26-5510). Senda skýringu með nafni keppenda á netfangið [email protected]

Eyrarmótaröðin er stigakeppni, þar sem keppendur safna stigum fyrir árangur í einstökum mótum. Stigagjöfinni er háttað svo:

  1. sæti – 12 stig
  2. sæti – 10 stig
  3. sæti –  8 stig
  4. sæti –  7 stig
  5. sæti –  6 stig
  6. sæti –  5 stig
  7. sæti –  4 stig
  8. sæti –  3 stig
  9. sæti –  2 stig
  10. sæti –  1 stig

 

Hestavöruverslunin Eyri á Sauðarkróki verðlaunar stigahæstu knapana í lok mótaraðarinnar. Önnur fyrirtæki leggja einnig sitt af mörkum til að gera hana sem glæsilegasta.

Aðrir keppnisdagar í mótaröðinni eru þessir (með fyrirvara um breytingar af óviðráðanlegum ástæðum):

 

  1. febrúar – gæðingafimi
  2. febrúar – fimmgangur
  3. mars      – futurity (unghrossakeppni)
  4. mars     – tölt

Flest mótin hefjast kl. 19, en annars er um að gera að fylgjast með þessum viðburðum á Facebook, þar sem meðal annars koma fram upplýsingar um skráningarfresti og -gjöld o.s.frv.

Verið velkomin heim að Hólum.

Ljósmynd sem fylgir fréttinni er af Larissu Werner og Páfa frá Kjarri frá því á Eyrarmótaröðinni í fyrra.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link