Landsamband hestamanna Eyrún Ýr skeiðknapi ársins

  • 21. nóvember 2026
  • Fréttir

Eyrún Ýr Pálsdóttir er skeiðknapi ársins 2026

Gullverðlaun á stærstu mótum ársins og efst á stöðulista

Skeiðknapi ársins 2026 er Eyrún Ýr Pálsdóttir en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landsambands hestamannafélaga í Gamla Bíói. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:

„Eyrún vann 100 metra skeið á Landsmóti á hryssunni Friðsemd frá Kópavogi. Eyrún og Friðsemd unnu jafnframt 100 metra skeið á Íslandsmóti auk þess að hafa sigrað sömu grein á Reykjavíkurmeistaramóti. Eyrún og Friðsemd eiga besta tíma ársins í 100 metra skeiði, 7,30 sekúndur og standa efstar á WR lista FEIF í 100 m. skeiði með glæsilegan meðaltíma upp á 7,34 sek.“

Eiðfaxi óskar Eyrúnu innilega til hamingju með árangur ársins!

Aðrir tilnefndir voru:
  • Gústaf Ásgeir Hinriksson
  • Konráð Valur Sveinsson
  • Páll Bragi Hólmarsson
  • Teitur Árnason

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link