Fækkun afkvæmahópa
Fyrir margan ræktandann eru afkvæmasýningar stóðhesta einn af hápunktum Landsmóta. Þar fá ræktendur að sjá á einum stað 5-15 afkvæmi þeirra hesta sem fremstir standa hverju sinni, ásamt umsögn um hvað einkennir afkvæmi þeirra. Þó svo að kynbótafræðin leggi til stilla í hóf notkun þetta gamalla stóðhesta gefur þetta ræktendum mikilvægar upplýsingar.
Reyndar vekur það athygli að varla er minnst á geðslag í dómsorðum nú til dags en þegar afkvæmaorð stóðhesta eru skoðuð er síðast minnst á geðslag/lund á landsmóti árið 2002. Svo virðist sem Ágúst Sigurðsson og Guðlaugur Antonsson leggi ekki í að fjalla um geðslag í þeim afkvæmaorðum sem gefin hafa verið út á þeirra tíð sem Landsráðunautar.
Fróðlegt er að skoða hvaða áhrif þær breytingar sem Fagráð leggur hefðu haft á afkvæmasýningar síðustu landsmóta. Ef síðustu þrjú Landsmót eru skoðuð þá voru 33 afkvæmahópar sem komu fram en ef þessi mörk hefðu verið við lýði þá hefðu þeir verið 22 alls.
Þessi mörk hefðu þýtt að á LM2008 hefðu Aron frá Strandarhöfði, Hágangur frá Narfastöðum, Dynur frá Hvammi og Þyrnir frá Þóroddsstöðum ekki hlotið 1.verðlaun fyrir afkvæmi en Huginn frá Haga og Gári frá Auðsholtshjáleigu hefði verið einir til 1.verðlauna. Ekki hefði þetta haft áhrif á fjölda Heiðursverðlaunastóðhesta á þessu móti.
Árið 2011 hefði afkvæmahópunum fækkað um tvo þar sem að afkvæmi klárhestanna Kjarna frá Þjóðólfshaga og Þrists frá Feti hefði ekki notið við í sýningum stóðhesta til 1.verðlauna.
En þegar núafstaðið Landsmót er skoðað miðað við þessi nýju mörk þá hefðu afkvæmahóparnir verið 6 í stað 11 sem hefði þýtt að Huginn frá Haga I og Þristur frá Feti hefðu ekki hlotið heiðursverðlaun og Eldjárn frá Tjaldhólum, Þytur frá Neðra-Seli og Gaumur frá Auðsholtshjáleigu hefðu ekki hlotið 1.verðlaun fyrir afkvæmi.
Ef þetta er tekið saman þá hefði þetta þýtt að Þristur hefði hvorki 1.verðlaun né heiðursverðlaun, Hugin frá Haga hefði einungis hlotið 1.verðlaun og Aron og Hágangur hefði ekki hlotið 1.verðlaun. Þeir Þytur, Gaumur, Þyrnir, Dynur, Eldjárn og Gaumur væri þá ekki á lista yfir þá hesta sem sýnir hefðu verið með afkvæmum.
Listinn ef þessi mörk hefðu verið við lýði væri þá eftirfarandi:
Landsmót 2012
Stóðhestar með afkvæmum, heiðursverðlaun
Álfur frá Selfossi
Markús frá Langholtsparti
Þóroddur frá Þóroddsstöðum
Stóðhestar með afkvæmum, 1. verðlaun
Víðir frá Prestsbakka
Aðall frá Nýjabæ
Krákur frá Blesastöðum 1A
Landsmót 2011
Stóðhestar með afkvæmum, heiðursverðlaun
Gári frá Auðsholtshjáleigu
Aron frá Strandarhjáleigu
Hágangur frá Narfastöðum
Adam frá Ásmundarstöðum
Stóðhestar með afkvæmum, 1. verðlaun
Arður frá Brautarholti
Álfur frá Selfossi
Blær frá Torfunesi
Stáli frá Kjarri
Vilmundur frá Feti
Gígjar frá Auðsholtshjáleigu
Sólon frá Skáney
Þóroddur frá Þóroddsstöðum
Landsmót 2008
Stóðhestar með afkvæmum, heiðursverðlaun
Hróður frá Refsstöðum
Sær frá Bakkakoti
Stóðhestar með afkvæmum, 1. verðlaun
Gári frá Auðsholtshjáleigu
Huginn frá Haga
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH