Fækkun keppenda kallar á hærri skráningargjöld

  • 25. júní 2021
  • Fréttir

Skráningu á Íslandsmótið í hestaíþróttum lauk í gærkvöldi en það fer fram á Hólum í Hjaltadal í næstu viku. Talsverð umræða hefur myndast á meðal hestamanna um skráningargjaldið sem er nú 15.000 krónur á hverja skráningu sem er hækkun miðað við það þegar Íslandsmót var síðast haldið árið 2019 að þá var gjaldið 7.900 kr í meistaraflokka og 6.500 kr í ungmennaflokka.

Blaðamaður Eiðfaxa hafði samband við Sigurð Heiðar Birgisson mótsstjóra og spurði hann út í ástæður þess.

„Á síðasta landsþingi LH var samþykkt að fækka keppendum á Íslandsmóti og að fyrirfram ákveðinn fjöldi knapa ætti þátttökurétt samkvæmt stöðulistum LH. Með því átti að auka gæðin á mótinu og gera þau áhorfendavænni og keppnina meira spennandi. Það segir sig þó sjálft að með því að fækka keppendum að þá minnkar innkoma mótshaldara af mótinu en startgjaldið er þó það sama og áður, þá á ég við vinna í völlum, allri aðstöðu, tjaldsvæði o.fl. Hvernig þessi breyting tekst síðan verður að koma í ljós og við fáum reynslu á það eftir þetta mót.“ Segir Sigurður og bætir við. „Við þessa áðurnefndu breytingu var ákveðið að hækka skráningargjöld til að koma á móts við mótshaldara. Innifalið í þessum 15.000 krónum er svo hesthúspláss, hey og spænir og aðstaða að gerðum og öðru sem því fylgir en keppendur þurfa að panta stíur svo við vitum hversu mikill fjöldi ætlar að nýta sér þá þjónustu.“ Panta má stíu með því að smella hér.

En er ekki allt að verða klárt á Hólum og stemningin að aukast. „Við erum orðinn alveg gífurlega spennt fyrir því að taka á móti öllum bestu knöpum og hestum landsins heim að Hólum og bjóðum einnig alla hestaáhugamenn velkomna hingað að fylgjast með spennandi og skemmtilegri keppni.“

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link