Færeyska hestakynið er í mikilli útrýmingarhættu.

  • 16. nóvember 2021
  • Fréttir

Færeyskir smáhestar. Allir færeyskir hestar í dag eru því afkomendur þriggja mera og eins graðhests. Mynd / Alessio Mesiano

Ákall um aðstoð, undirskriftasöfnun sem lýkur í kvöld.

Eiðfaxi fékk sent til sín neyðarkall frá félaginu Færoysk Hross vegna undirskriftarsöfnunnar sem stendur yfir og lýkur í kvöld. En markmið hennar að hjálpa félaginu að koma í veg fyrir útrýmingu færeyska hestakynsins sem er í mikilli útrýmingarhættu.

Tilkynningin frá félaginu hljómar svona: „Færeyska hestakynið er í mikilli útrýmingarhættu. Bræðraþjóðin, Færeyjar, þarf á allri því hjálp að halda, sem hægt er að fá. Félagið Færoysk Hross er að safna undirskriftum til þess að benda Færeysku stjörnvöldum á alvarsemi málsins. Síðasta tækifæri að skrifa undir er í kvöld.“

Á vefnum Petitions, þar sem undirskriftarsöfnunin fer fram, kemur fram að vonast sé eftir að útflutningur verði leyfður á færeyska hestinum til Danmerkur þar sem eftirspurn er til staðar. „Markmiðið er að bjarga framtíð færeyska hestsins en kynið er í vanda statt. Of fá folöld fæðast á hverju ári vegna minnkandi eftirspurnar. Það eru einungis 25 frjóar hryssur lifandi og af þeim eru einungis 7 – 10 notaðar til undaneldis. Samkvæmt The Food and Agriculture Organization (FAO) þarf fjöldi ræktunarhryssa að vera meiri en 1000 til að bjarga tegundinni frá útrýmingu. Undirskriftirnar verða notaðar til að beita stjórnvöld þrýstingi og hvetja þau til að semja lög sem leyfa útflutning en engin slík lög eru til í dag.“

Hér er hægt að skrifa undir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link