Fákaflug næstu helgi

  • 26. júlí 2011
  • Fréttir
Fákaflug næstu helgi

Fákaflug verður haldið næstu helgi á Vindheimamelum og lítur út fyrir líflega hátíð að er fram kemur í tilkynningu frá mótanefnd.

„Skráningar á mótið eru mjög miklar og stefnir í stærra mót en í fyrra. Veitingasala verður á svæðinu alla helgina og á laugardagskvöldið verður kvöldvaka með lifandi tónlist, söng og gleði.  Miðaverð inn á svæðið er kr.2.000,- innifalið í því er tjaldsvæði fyrir þá sem vilja gista.

Vegna áskoranna höfum við ákveðið að bjóða einnig upp á 150m skeið og er möguleiki fyrir fólk að skrá sig í þann flokk fram á miðnætti miðvikudagskvöldið 27.júlí.

Skráning er hjá Guðmundi á netfanginu [email protected].  Gefa þarf upp keppnisgrein, nafn og kennitölu knapa og IS númer hrossins við skráningu.

Skráningargjald er kr.3.000,- og skal það greiðast inn á reikning 161-26-269, kt.620269-6979 með nafni knapa í skýringu og senda staðfestingu í tölvupósti á [email protected].“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link