Fákar fluttir til fjórtán landa
Alls hafa 464 hross verið flutt til fjórtán það sem af er árinu 2014 samkvæmt upplýsingum frá Bændasamtökum Íslands. Langflest hrossin fóru Þýskalands, 237 talsins, 51 til Svíþjóðar og 48 til Sviss. Þá fóru 11 hestar til Finnlands, 8, til Bandaríkjana, 6 til Frakklands, 2 til Bretlands og 1 til Lichtenstein og Slóveníu svo eitthvað sé nefnt.
Af útfluttum hrossum ársins hafa nítján þeirra hlotið fyrstu verðlaun í kynbótadómi. Hæst dæmdir eru stóðhestarnir Máttur frá Leirubakka, Hringur frá Skarði og Vörður frá Árbæ.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH